
Alls verða fimm framboðslistar á kjörseðli íbúa á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Einar Gunnar Einarsson formaður kjörstjórnar staðfestir það í samtali við Skessuhorn. Kjörstjórn mun nú yfirfara lista og önnur kjörgögn og funda með umboðsmönnum listanna á sunnudaginn. Í framboði verða Framsókn með frjálsum, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Viðreisn og Miðflokkur. Viðreisn býður nú fram í…Lesa meira








