Sverrir Mar Smárason, stofnandi og rekstrarstjóri, fyrir framan rekka sem voru nær tómir fyrir tveimur dögum. Ljósm. óhk

Bás33.is slær í gegn

Hringrásarverslunin Bás33.is við Smiðjuvelli 32 á Akranesi fer vel af stað, að sögn Sverris Mar Smárasonar, stofnanda og eiganda verslunarinnar. „Viðtökur frá opnun síðasta miðvikudag hafa verið mjög góðar og farið fram úr mínum björtustu vonum. Það eru nú þegar komnar pantanir fram í tímann þannig að ég get ekki verið annað en ánægður með viðtökur Skagamanna og nærsveitunga,“ sagði Sverrir, þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði í hádeginu í dag. Ljóst er að það hafa orðið mikil umskipti á örfáum dögum, flest allir rekkar þétt hlaðnir af fatnaði og heimilisvörum sem bíða nýrra notenda og fólk bíður eftir að básar losni.