
Haraldur lætur í dag af starfi bæjarstjóra
Í yfirlýsingu sem Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi var að senda kemur fram að í dag lætur hann af starfi bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, en starfinu hefur hann gegnt undanfarin þrjú ár. „Ástæðan fyrir þessum vistaskiptum nú er að ég er í framboði til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar frá og með deginum í dag. Mig langar að nota reynslu mína, þekkingu og tengsl sem ég hef eignast í gegnum félagsmál og þátttöku í landsmálum til að vera með í liði sem vill efla Hvalfjarðarsveit,“ segir hann í yfirlýsingu. Nú fyrir stundu skilaði A-listi Samhentrar sveitar framboðslista til kjörstjórnar Hvalfjarðarsveitar, en þar skipar Haraldur oddvitasætið.
Yfirlýsing Haraldar:
„Frá starfi bæjarstjóra geng ég fullur þakklætis fyrir tímann og alla vináttuna sem ég hef eignast á þessum tíma – ég þakka samstarfsfólki mínu gott og gefandi samstarf.
Ég fæ tækifæri til að vera hluti af öflugum hópi fólks. Framboðið vill að Hvalfjarðarsveit sé sveitarfélag sem laðar að fólk til búsetu því sveitarfélagið hefur upp á svo ótalmargt að bjóða í þeim efnum. Sveitarfélag sem hefur vaxið frá hefðbundnu sveitasamfélagi til kröftugrar byggðar sl. 20 ár.
Hvalfjarðarsveit hefur stækkað hratt og á eftir að verða fjölmennara og sterkara samfélag þeirra sem velja sér hér búsetu og starfsvettvang. Hér eiga allir að geta fundið sín tækifæri með samhentu átaki samfélagsins alls – og þar gegnir sveitarfélagið mikilvægu hlutverki.
Mig langar að fylgja eftir tækifærum og fjölbreyttum verkefnum sem ég hef komið að allt frá þeim tíma sem ég var alþingismaður, í góðu samstarfi við sveitarstjórnarfólk og alla íbúa. Stórverkefni eins og Sundabraut, starfsumhverfi fyrirtækja á svæðinu og framtíð þeirra. Ný og spennandi störf, fyrirtæki sem eiga framtíðina fyrir sér. Svo ótrúleg tækifæri eru innan seilingar og það þarf styrk og kraft til að leysa þau úr læðingi.
Fyrst og fremst er áhugi minn og vilji að vera í hagsmunagæslu, hagsmunabaráttu og þjónustu fyrir mitt nærsamfélag – stuðla að því að sveitarfélagið haldi áfram að reka öfluga skóla með okkar góða fagfólki og sterka velferðarþjónustu, ásamt því að halda áfram metnaðarfullri uppbyggingu innviða til framtíðar í takt við stækkandi sveitarfélag og íbúaþróun.
Ég sé tækifæri í að efla landbúnaðinn í sveitarfélaginu. Þar getur sveitarfélag verið styðjandi og hvetjandi. Landbúnaður er öflugur í Hvalfjarðarsveit.
Erindi mitt er líka að taka til varnar fyrir samfélagið – að því er sótt með áformum stjórnvalda um „hvalrekaskatt“ sem mun bitna alvarlega á fjárhag sveitarfélagsins. Áform um að svipta sveitarfélagið fasteignaskatti af stóriðju hafa verið birt á samráðsgátt stjórnvalda. Við skulum þora að ræða hugsanlegar afleiðingar þess sem gætu þýtt harkalegan samdrátt í þjónustu sveitarfélagsins og jafnvel minni vilja íbúa til að heimila frekari uppbyggingu á Grundartanga.
Ástæðan er einföld – hvers vegna ættum við að vilja styðja við meiri uppbyggingu ef engin hagur er af því fyrir nærsamfélagið? Þetta eru hættuleg áform og munu á endanum hafa áhrif á allt samfélagið norðan Hvalfjarðar og þjóðfélagið allt og í þessu efni þarf sveitarfélagið og sveitarstjórn að grípa til varna af festu og krafti.