
Fimm framboð í boði á Akranesi
Alls verða fimm framboðslistar á kjörseðli íbúa á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Einar Gunnar Einarsson formaður kjörstjórnar staðfestir það í samtali við Skessuhorn. Kjörstjórn mun nú yfirfara lista og önnur kjörgögn og funda með umboðsmönnum listanna á sunnudaginn. Í framboði verða Framsókn með frjálsum, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Viðreisn og Miðflokkur. Viðreisn býður nú fram í fyrsta skipti á Akranesi.
Skessuhorn hefur áður sagt frá framboðum allra þessara lista, utan Miðflokksins. Listinn hefur ekki verið gefinn út opinberlega en samkvæmt heimildum Skessuhorns er oddviti hans Hrafn Ágúst Björnsson sem starfar sem öryggisráðgjafi.