
Borað verður í haust nærri flaggstönginni og vatnshananum við Jaðarsbraut. Ljósm. mm
Jarðhitaleit á Akranesi frestast til haustsins
Akraneskaupstaður hefur auglýst ákvörðun bæjarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis til Veitna vegna rannsóknarborunar eftir heitu vatni við Jaðarsbraut á Akranesi. Tekið er fram að kærufrestur vegna framkvæmdarinnar er fjórar viku frá og með birtingu auglýsingar 8. apríl sl. Til stóð að borframkvæmdir hæfust í vor og lyki snemmsumars. Nú hafa Veitur staðfest í samskiptum við húsráðendur á svæðinu að vegna tafa í aðfangakeðju er nýr bor sem nota á við framkvæmdina ekki kominn til landsins. Þar af leiðandi verður fyrst í haust hægt að hefja framkvæmdir.