
Að óbreyttu verður sjálfkjörið í Snæfellsbæ
Frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórna rann út á hádegi í dag, 10. apríl. Samkvæmt lögum er viðhaft persónukjör berist ekki framboðslisti. Sú verður raunin í Dalabyggð. Þar eru fjórir fyrrum sveitarstjórnarfulltrúar sem gátu skv. lögum skorast undan endurkjöri; þau Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Halla Sigríður Steinólfsdóttir, Skúli Hreinn Guðbjörnsson og Þuríður Jóney Sigurðardóttir.
Í Eyja- og Miklaholtshreppi barst sömuleiðis ekki framboðslisti og verður því viðhaft persónukjör. Sigurjörg Ottesen oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps staðfestir í samtali við Skessuhorn að enginn núverandi fulltrúa í sveitarstjórn hafi beðist undan endurkjöri. Því verða allir íbúar á kosningaaldri í kjöri við kosningarnar í vor.
Í Snæfellsbæ barst einungis eitt framboð D-lista Sjálfstæðisflokks. Í lögum um kosningar til sveitarstjórnar segir: „Nú kemur aðeins fram einn framboðslisti við sveitarstjórnarkosningar og skal þá yfirkjörstjórn sveitarfélags framlengja framboðsfrest um tvo sólarhringa. Komi fram nýr framboðslisti innan þess frests er heimilt að veita honum fjögurra daga frest til að uppfylla skilyrði skv. 39. gr. Komi ekki fram nýr framboðslisti áður en sá frestur er úti verður framkominn framboðslisti sjálfkjörinn.“ Að óbreyttu er því líklegt að sjálfkjörið verði í Snæfellsbæ.
Listakosningar verða á Akranesi, í Hvalfjarðarsveit, sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, Sveitarfélaginu Stykkishólmi og Grundarfjarðarbæ, en í þessum sveitarfélögum bárust tvö eða fleiri framboð.
Ath! fréttin var uppfærð eftir því sem upplýsingar bárust