
Bæjarskrifstofan við Dalbraut 4 á Akranesi.
Steinar tekur við sem bæjarstjóri
Bæjarstjórn Akraness og Haraldur Benediktsson hafa komist að samkomulagi um starfslok Haraldar sem bæjarstjóra Akraneskaupstaðar frá og með deginum í dag. „Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs og staðgengill bæjarstjóra verður starfandi bæjarstjóri fram yfir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 16. maí næstkomandi. Um er að ræða sameiginlega ákvörðun Haraldar og bæjarstjórnar enda var bæjarstjórn kunnugt um að Haraldur myndi ekki sækjast eftir áframhaldandi ráðningu á næsta kjörtímabili,“ segir í tilkynningu frá Akraneskaupstað.