Farið yfir gögnin á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar klukkan 11 í dag. F.v. Birkir Snær Guðlaugsson og Helgi Pétur Ottesen umboðsmenn. Í kjörstjórn eru þau Ásta Marý Stefánsdóttir, Jóna Björg Kristinsdóttir og Guðmundur Ólafsson formaður. Ljósm. mm

A listi Samhentrar sveitar býður fram í Hvalfjarðarsveit

Á hádegi í dag rann úr frestur til að skila inn framboðum vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Í sveitarfélaginu Hvalfjarðarsveit var Íbúalistinn búinn að skila inn framboðsgögnum. Klukkan 11 var kjörstjórn á fundi og tók við framboðum. Eitt til viðbótar barst og var það í nafni A lista, Samhentrar sveitar. Oddviti listans er Haraldur Benediktsson bóndi á Vestri-Reyni. Umboðsmenn listans þeir Helgi Pétur Ottesen og Birkir Snær Guðlaugsson lögðu hann fyrir kjörstjórn. Aðspurður segist Haraldar ekki ætla að sækjast eftir starfi sveitarstjóra fái listinn meirihluta í sveitarstjórn.

Listinn í heild er þannig:

Nr. 1 Haraldur Benediktsson, bóndi og fv. alþingsmaður.

Nr. 2 Guðrún Sigríður Gísladóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks.

Nr. 3 Guðbjartur Þór Stefánsson, umsjónarmaður hestamiðstöðvar LbhÍ og bóndi.

Nr. 4 Einar Þórarinsson, stjórnandi og tölvunarfræðingur.

Nr. 5 Brynhildur Stefánsdóttir, stundakennari og listamaður.

Nr 6 Bjarki Borgdal Magnússon, verktaki og frístundabóndi.

Nr. 7 Arney Þyrí Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðurnemi.

Nr. 8 Jón Þór Marinósson, bóndi og búfræðingur.

Nr. 9 Erna Elvarsdóttir, verslunarstjóri.

Nr. 10 Anton Teitur Ottesen, formaður ungmennaráðs og starfsmaður NA.

Nr. 11 Róbert Eyvar Ólafsson, vélvirkjameistari.

Nr. 12 Inga María Sigurðardóttir, nemi og sveitarstjórnarfulltrúi.

Nr. 13 Björgvin Helgason, bóndi og fv. oddviti Hvalfjarðarsveitar.

Nr. 14 Andrea Ýr Arnarsdóttir, oddviti Hvalfjarðarsveitar.