
Hagstofan metur að samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar hafi 17.000 verið atvinnulausir í febrúarmánuði hér á landi. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 7,1%, hlutfall starfandi var 75% og atvinnuþátttaka 80,8%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 0,4 prósentustig á milli janúar og febrúar, hlutfall starfandi lækkaði um 0,8 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 0,6 prósentustig.Lesa meira








