Fréttir

true

Segir vindorkuverin stórslys ef þau rísa

Áform um vindorkuver í Borgarfirði og Dölum eru þegar farin að hafa áhrif á kaupendur jarða og sumarhúsa, að sögn fasteignasala. Alls eru átta vindorkuver fyrirhuguð á Vesturlandi. Magnús Leopoldsson fasteignasali, sem hefur sýslað mikið með sölu jarða og sumarhúsa, segir að kaupendur sem leiti að jörðum til sölu séu þegar farnir að spyrja hvort…Lesa meira

true

Samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda

Tillögugerð starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Í skýrslu starfshópsins eru lagðar fram sjö tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við þessa einstaklinga. Þar kemur fram að þrátt fyrir að ýmis mikilvæg úrræði séu til staðar sé þjónusta við þennan hóp að mörgu…Lesa meira

true

Ultraform á Akranesi vex fiskur um hrygg

Þrek- og aflraunamót á vegum Ultraform og ÍA á Akranesi Líkamsræktarstöðin Ultraform var stofnað af hjónunum Sigurjóni Erni Sturlusyni og eiginkonu hans, Simonu Vareikaité, í bílskúr á heimili þeirra hjóna í Reykjavík 28. júni 2020. Sigurjón Ernir er frá Hnúki í Hvalfjarðarsveit en eiginkona hans kemur frá Frakklandi. „Við byrjuðum á Kirkjustéttinni í Grafarholti, í…Lesa meira

true

Bætur fylgja hér eftir launavísitölu

Alþingi samþykkti í dag lög sem fela í sér að greiðslur almannatrygginga fylgja framvegis þróun launavísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar út og birtir, í stað þess að taka mið af spá um launaþróun.  Greiðslur almannatrygginga eru að stærstum hluta ellilífeyrir og greiðslur vegna örorku og endurhæfingar. „Í dag stígum við mikilvægt skref í átt að…Lesa meira

true

Mikill snjór og fastur dráttarbíll á Bröttubrekku

Síðastliðna nótt var björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði kölluð út til að aðstoða ökumann á föstum dráttarbíl upp á Bröttubrekku. Þegar komið var á vettvang höfðu gríðarstórir skaflar myndast og þrátt fyrir nokkrar tilraunir þá haggaðist bíllinn ekki. Var kominn svo mikill snjór að snjóruðningstækið lagði ekki í að moka veginn. Á endanum varð Vegagerðin að…Lesa meira

true

Keilufólk ÍA náði góðum árangri á Íslandsmóti unglinga

Íslandsmót unglinga í keilu var haldið helgina 14. og 15. mars í Egilshöll í Reykjavík. Þar átti ÍA fjóra fulltrúa. Í 5. flokki pilta keppti Tristan Freyr Birgisson og stóð sig með prýði og náði 865 pinnum í átta leikjum og var næst hæstur, en allir í þessum flokki fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Í 3.…Lesa meira

true

Snæfellskonur með góðan sigur á ÍR

Í gærkvöldi tók kvennalið Snæfells á móti ÍR í Íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Liðin voru á svipuðum stað í stigatöflu 1. deildar og því var fyrirfram búist við sprennandi leik. Sú varð og raunin því eftir fyrsta leikhluta leiddu gestirnir með tveimur stigum og staðan 23-25. Eftir það sáu ÍR ingar hins vegar ekki til sólar.…Lesa meira

true

Fyrstu fermingar í Garða- og Saurbæjarprestakalli um aðra helgi

Hundrað ungmenni á Akranesi og í nágrannasveitum eru nú í fermingarundirbúningi og stóra stundin að nálgast. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með séra Þóru Björgu Sigurðardóttur, presti í Garða- og Saurbæjarprestakalli til að ræða um fermingarundirbúning kirkjunnar sem nú fer í hönd. Þóra Björg, sem starfaði í mörg ár sem æskulýðsfulltrúi í Grafarvogskirkju í Reykjavík, er…Lesa meira

true

Bálhvasst og fjallvegir lokaðir

Nú er suðvestan hvassviðri um allt vestanvert landið og gul viðvörun í gildi. Rigning er á láglendi en él til heiða. Á norðanverðu Snæfellsnesi er mjög hvasst og slær vindur í 40 metra á sekúndu eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af umferdin.is. Við Hafnarfjall slær vindur í 29 m/sek í hviðum. Þessu fylgir…Lesa meira

true

Hvöss suðvestanátt með éljum til laugardagsmorguns – english below

Frá aðfararnótt föstudags og fram á laugardagsmorgun er búist við hvassri suðvestanátt með éljagangi um allt sunnan- og vestanvert landið. „Sú snjókoma og skafrenningur getur skapað erfið og tímabundið blind akstursskilyrði á vegum og heiðum á vesturhelmingi landsins. Vindur víða 18-23 m/s og hviður um 30-35 m/s á þessum svæðum,“ segir í hugleiðingum Vegagerðarinnar. From…Lesa meira