
Bætur fylgja hér eftir launavísitölu
Alþingi samþykkti í dag lög sem fela í sér að greiðslur almannatrygginga fylgja framvegis þróun launavísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar út og birtir, í stað þess að taka mið af spá um launaþróun. Greiðslur almannatrygginga eru að stærstum hluta ellilífeyrir og greiðslur vegna örorku og endurhæfingar.
„Í dag stígum við mikilvægt skref í átt að réttlátara samfélagi,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra af þessu tilefni. „Markmiðið með breytingunum var að tryggja að fatlað fólk, öryrkjar og ellilífeyrisþegar drægjust ekki aftur úr öðrum þegar kæmi að kaupmætti. Það höfum við nú gert. Ég óska lífeyrisþegum og öllum sem þeim tengjast hjartanlega til hamingju,“ sagði Ragnar Þór.
Lögin taka þegar gildi.