Fyrstu fermingar í Garða- og Saurbæjarprestakalli um aðra helgi

Hundrað ungmenni á Akranesi og í nágrannasveitum eru nú í fermingarundirbúningi og stóra stundin að nálgast. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með séra Þóru Björgu Sigurðardóttur, presti í Garða- og Saurbæjarprestakalli til að ræða um fermingarundirbúning kirkjunnar sem nú fer í hönd. Þóra Björg, sem starfaði í mörg ár sem æskulýðsfulltrúi í Grafarvogskirkju í Reykjavík, er búin að starfa á Akranesi sem prestur í sex ár og líkar mjög vel.