
Snæfellskonur með góðan sigur á ÍR
Í gærkvöldi tók kvennalið Snæfells á móti ÍR í Íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Liðin voru á svipuðum stað í stigatöflu 1. deildar og því var fyrirfram búist við sprennandi leik. Sú varð og raunin því eftir fyrsta leikhluta leiddu gestirnir með tveimur stigum og staðan 23-25. Eftir það sáu ÍR ingar hins vegar ekki til sólar. Annan leikhluta unnu heimakonur 18-11, þann þriðja 16-11 og fjórða og síðasta með 19 stigum gegn 8. Lokatölur því 76-55.