
Samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda
Tillögugerð starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Í skýrslu starfshópsins eru lagðar fram sjö tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við þessa einstaklinga. Þar kemur fram að þrátt fyrir að ýmis mikilvæg úrræði séu til staðar sé þjónusta við þennan hóp að mörgu leyti brotakennd eins og hún birtist börnum og fjölskyldum þeirra. Helstu áskoranir lúta meðal annars að óskýrri ábyrgðarskiptingu milli kerfa, takmarkaðri samhæfingu barnaverndar og heilbrigðisþjónustu og skorti á sérhæfðum úrræðum fyrir börn með samsettan vanda.