
Síðastliðna nótt var björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði kölluð út til að aðstoða ökumann á föstum dráttarbíl upp á Bröttubrekku. Þegar komið var á vettvang höfðu gríðarstórir skaflar myndast og þrátt fyrir nokkrar tilraunir þá haggaðist bíllinn ekki. Var kominn svo mikill snjór að snjóruðningstækið lagði ekki í að moka veginn. Á endanum varð Vegagerðin að…Lesa meira








