Börnin á Snartarstöðum með þrílembingana. F.v. Arnfríður Birna, Anna Laufey, Björn Sigþór og Heiðdís Guðrún. Ljósm. gmb

Ærin Sameining þrílembd eftir þjófstart í Skorradalnum

Ærin Sameining á bænum Snartarstöðum í Lundarreykjadal kom bændum þar á óvart í gær þegar hún bar þremur myndar lömbum. Móður og afkvæmum heilsast vel. Jarðirnar Háafell í Skorradal og Snartarstaðir í Lundarreykjadal liggja saman og þar gengur féð af bænum. Við fósturtalningu fyrr í vetur hafði þó komið í ljós að Sameining væri fyrr á ferðinni en aðrar ær í húsunum, en burður hennar er ríflega mánuði fyrr á ferðinni. Von er á fyrstu lömbunum úr sæðingunum um 20. apríl. „Við látum bera snemma hjá okkur til að hafa rýmri tíma til að sinna kartöflunum í maí,“ segir Guðrún María Björnsdóttur bóndi í samtali við Skessuhorn.