
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj
Auglýsa eftir menningarstyrkjum
Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir í Skessuhorni vikunnar eftir umsóknum um styrki. Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í sveitarfélaginu, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu. Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun. Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt á vef Borgarbyggðar og er umsóknarfrestur til 23. apríl nk.
