Fréttir

true

Fyrstu fermingar í Garða- og Saurbæjarprestakalli um aðra helgi

Hundrað ungmenni á Akranesi og í nágrannasveitum eru nú í fermingarundirbúningi og stóra stundin að nálgast. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með séra Þóru Björgu Sigurðardóttur, presti í Garða- og Saurbæjarprestakalli til að ræða um fermingarundirbúning kirkjunnar sem nú fer í hönd. Þóra Björg, sem starfaði í mörg ár sem æskulýðsfulltrúi í Grafarvogskirkju í Reykjavík, er…Lesa meira

true

Bálhvasst og fjallvegir lokaðir

Nú er suðvestan hvassviðri um allt vestanvert landið og gul viðvörun í gildi. Rigning er á láglendi en él til heiða. Á norðanverðu Snæfellsnesi er mjög hvasst og slær vindur í 40 metra á sekúndu eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af umferdin.is. Við Hafnarfjall slær vindur í 29 m/sek í hviðum. Þessu fylgir…Lesa meira

true

Hvöss suðvestanátt með éljum til laugardagsmorguns – english below

Frá aðfararnótt föstudags og fram á laugardagsmorgun er búist við hvassri suðvestanátt með éljagangi um allt sunnan- og vestanvert landið. „Sú snjókoma og skafrenningur getur skapað erfið og tímabundið blind akstursskilyrði á vegum og heiðum á vesturhelmingi landsins. Vindur víða 18-23 m/s og hviður um 30-35 m/s á þessum svæðum,“ segir í hugleiðingum Vegagerðarinnar. From…Lesa meira

true

Þrílandað úr Júlla Páls í gær

Það kemur oft fyrir að bátar tvílandi afla sínum á einum degi, en það er sjaldan að þeir landi þrisvar sinnum sama daginn. En það gerðist í gær að netabáturinn Júlli Páls SH landaði þrisvar sinnum í Ólafsvík alls rúmlega 17 tonnum af vænum þorski í aðeins 40 net. Meðalaflinn í hvert net var því…Lesa meira

true

Auglýsa eftir menningarstyrkjum

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir í Skessuhorni vikunnar eftir umsóknum um styrki. Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í sveitarfélaginu, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu. Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun. Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt á vef Borgarbyggðar og er umsóknarfrestur til 23.…Lesa meira

true

Ærin Sameining þrílembd eftir þjófstart í Skorradalnum

Ærin Sameining á bænum Snartarstöðum í Lundarreykjadal kom bændum þar á óvart í gær þegar hún bar þremur myndar lömbum. Móður og afkvæmum heilsast vel. Jarðirnar Háafell í Skorradal og Snartarstaðir í Lundarreykjadal liggja saman og þar gengur féð af bænum. Við fósturtalningu fyrr í vetur hafði þó komið í ljós að Sameining væri fyrr…Lesa meira

true

Engin tilviljun að skelbætur hafa verið greiddar í aldarfjórðung – fréttaskýring

Talsvert alvarleg staða er að teiknast upp fyrir heilsárs rekstrargrundvöll fjölmargra útgerða á landsbyggðinni, ef frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra verður að lögum. Þar er lagt til afnám línuívilnunar og skel- og rækjubóta sem hafa verið í þeim potti sem tilheyrt hefur byggðakvótanum, sem er 5,3% aflaheimilda við Íslandsstrendur. Gagnrýnt er að heilsársstörf muni með þessu…Lesa meira

true

Gular viðvaranir taka gildi

Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir fyrir stærstan hluta landsins vegna suðvestan- og sunnan hvassviðris með slyddu eða éljum. Sumsstaðar taka viðvaranir gildi seint í kvöld og eru fram á laugardag. Á spásvæðinu Breiðafirði tekur gul viðvörun gildi í kvöld klukkan 23 og verður með einu hléi síðdegis á morgun, til laugardagsmorguns. Það verður sunnan 18-25…Lesa meira

true

Segja langsótt að Vestfjarðavegur verði hluti hringvegar

Þolinmæði Dalamanna er á þrotum og brýnt er að raunverulegar vegabætur hefjist án frekari tafa Sveitarstjórn Dalabyggðar fagnar í ályktun framkomnu minnisblaði starfshóps sem innviðaráðherra skipaði þar sem lagt er til að Vestfjarðarvegur nr. 60 í gegnum Dali og vegur 61 verði skilgreindir sem hluti af þjóðvegi 1. Í bréfi sem sveitarstjórn hefur sent á…Lesa meira

true

Búast við að auka þurfi öxulþunga takmarkanir

Staðan á vegum á Vesturlandi er áfram nokkuð óljós, að sögn starfsmanna Vegagerðarinnar, þar sem frost er enn þá að fara úr vegum. „Ljóst er að 10 tonna öxulþungi verða áfram á Snæfellsnesvegi 54 og Vestfjarðarvegi 60 alla vega fram á mánudaginn 23. mars. Eins viljum við vekja athygli á því að á morgun fimmtudaginn…Lesa meira