Segja langsótt að Vestfjarðavegur verði hluti hringvegar

Þolinmæði Dalamanna er á þrotum og brýnt er að raunverulegar vegabætur hefjist án frekari tafa

Sveitarstjórn Dalabyggðar fagnar í ályktun framkomnu minnisblaði starfshóps sem innviðaráðherra skipaði þar sem lagt er til að Vestfjarðarvegur nr. 60 í gegnum Dali og vegur 61 verði skilgreindir sem hluti af þjóðvegi 1. Í bréfi sem sveitarstjórn hefur sent á innviðaráðherra, alþingismenn í Norðvesturkjördæmi, forstjóra Vegagerðarinnar og svæðisstjóra Vegagerðarinnar á Vestursvæði segir: „Einnig fögnum við þeim metnaðarfullu áformum sem þar koma fram þar sem lagt er til að ástand þeirra vega sem um ræðir eigi að vera sambærileg gæðum þjóðvegar 1 á árinu 2027, þó það sé raunsætt mat að það sé langsótt miðað við ástand veganna í dag. Það er engu að síður mat sveitarstjórnar Dalabyggðar að breyting sem þessi geti mögulega bæði flýtt nauðsynlegum endurbótum á vegunum og stuðlað að því að hann í heild sinni komist í ásættanlegt horf með tilliti til umferðaröryggis.“

Þá segir í ályktun sveitarstjórnar að á sama tíma lýsi hún miklum vonbrigðum með tillögu innviðaráðherra að nýrri samgönguáætlun 2026 - 2040. „Þrátt fyrir yfirlýsingar um metnaðarfulla og fullfjármagnaða áætlun eru engin skýr merki um að ráðist verði í þær úrbætur í vegamálum í Dalabyggð sem brýnt er að ráðast í. Vegakerfið í Dölum hefur um árabil setið eftir miðað við önnur svæði landsins og það er með öllu óásættanlegt að sú staða virðist áfram við lýði. Nýlegar þungatakmarkanir á vegum í Dalabyggð undirstrika enn alvarleika stöðunnar. Íbúar og atvinnulíf í Dalabyggð geta ekki sætt sig við að búa við vegakerfi sem stenst hvorki eðlilegar kröfur um aðgengi né umferðaröryggi. Sveitarstjórn Dalabyggðar krefst þess að innviðaráðuneytið og Vegagerðin bregðist tafarlaust við og tryggi að vegir í Dalabyggð fái ásættanlega uppbyggingu og viðhald. Þolinmæði Dalamanna er á þrotum og brýnt er að raunverulegar úrbætur hefjist án frekari tafa,“ segir í bréfi sveitarstjórnar.