Gular viðvaranir taka gildi

Veðurstofan hefur gefið út viðvaranir fyrir stærstan hluta landsins vegna suðvestan- og sunnan hvassviðris með slyddu eða éljum. Sumsstaðar taka viðvaranir gildi seint í kvöld og eru fram á laugardag.

Á spásvæðinu Breiðafirði tekur gul viðvörun gildi í kvöld klukkan 23 og verður með einu hléi síðdegis á morgun, til laugardagsmorguns. Það verður sunnan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s, hvassast sunnantil á svæðinu. Þar verður varasamt ferðaveður. Einnig má búast við slyddu og síðar mikilli rigningu með tilheyrandi líkum á vatnavöxtum og er fólk hvatt til að hreinsa frá niðurföllum.

Við Faxaflóa verður suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum og slæmu skyggni. Líkur á versnandi færð, einkum á fjallvegum. Varasamt ferðaveður. Einnig má búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda. Viðvörun tekur gildi klukkan 20 fimmtudagskvöld og gildir fram á laugardagsmorgun.

Fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám og fréttum af færð á umferdin.is