Fréttir

true

Bætur fylgja hér eftir launavísitölu

Alþingi samþykkti í dag lög sem fela í sér að greiðslur almannatrygginga fylgja framvegis þróun launavísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar út og birtir, í stað þess að taka mið af spá um launaþróun.  Greiðslur almannatrygginga eru að stærstum hluta ellilífeyrir og greiðslur vegna örorku og endurhæfingar. „Í dag stígum við mikilvægt skref í átt að…Lesa meira

true

Mikill snjór og fastur dráttarbíll á Bröttubrekku

Síðastliðna nótt var björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði kölluð út til að aðstoða ökumann á föstum dráttarbíl upp á Bröttubrekku. Þegar komið var á vettvang höfðu gríðarstórir skaflar myndast og þrátt fyrir nokkrar tilraunir þá haggaðist bíllinn ekki. Var kominn svo mikill snjór að snjóruðningstækið lagði ekki í að moka veginn. Á endanum varð Vegagerðin að…Lesa meira

true

Keilufólk ÍA náði góðum árangri á Íslandsmóti unglinga

Íslandsmót unglinga í keilu var haldið helgina 14. og 15. mars í Egilshöll í Reykjavík. Þar átti ÍA fjóra fulltrúa. Í 5. flokki pilta keppti Tristan Freyr Birgisson og stóð sig með prýði og náði 865 pinnum í átta leikjum og var næst hæstur, en allir í þessum flokki fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Í 3.…Lesa meira

true

Snæfellskonur með góðan sigur á ÍR

Í gærkvöldi tók kvennalið Snæfells á móti ÍR í Íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Liðin voru á svipuðum stað í stigatöflu 1. deildar og því var fyrirfram búist við sprennandi leik. Sú varð og raunin því eftir fyrsta leikhluta leiddu gestirnir með tveimur stigum og staðan 23-25. Eftir það sáu ÍR ingar hins vegar ekki til sólar.…Lesa meira

true

Fyrstu fermingar í Garða- og Saurbæjarprestakalli um aðra helgi

Hundrað ungmenni á Akranesi og í nágrannasveitum eru nú í fermingarundirbúningi og stóra stundin að nálgast. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með séra Þóru Björgu Sigurðardóttur, presti í Garða- og Saurbæjarprestakalli til að ræða um fermingarundirbúning kirkjunnar sem nú fer í hönd. Þóra Björg, sem starfaði í mörg ár sem æskulýðsfulltrúi í Grafarvogskirkju í Reykjavík, er…Lesa meira

true

Bálhvasst og fjallvegir lokaðir

Nú er suðvestan hvassviðri um allt vestanvert landið og gul viðvörun í gildi. Rigning er á láglendi en él til heiða. Á norðanverðu Snæfellsnesi er mjög hvasst og slær vindur í 40 metra á sekúndu eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af umferdin.is. Við Hafnarfjall slær vindur í 29 m/sek í hviðum. Þessu fylgir…Lesa meira

true

Hvöss suðvestanátt með éljum til laugardagsmorguns – english below

Frá aðfararnótt föstudags og fram á laugardagsmorgun er búist við hvassri suðvestanátt með éljagangi um allt sunnan- og vestanvert landið. „Sú snjókoma og skafrenningur getur skapað erfið og tímabundið blind akstursskilyrði á vegum og heiðum á vesturhelmingi landsins. Vindur víða 18-23 m/s og hviður um 30-35 m/s á þessum svæðum,“ segir í hugleiðingum Vegagerðarinnar. From…Lesa meira

true

Þrílandað úr Júlla Páls í gær

Það kemur oft fyrir að bátar tvílandi afla sínum á einum degi, en það er sjaldan að þeir landi þrisvar sinnum sama daginn. En það gerðist í gær að netabáturinn Júlli Páls SH landaði þrisvar sinnum í Ólafsvík alls rúmlega 17 tonnum af vænum þorski í aðeins 40 net. Meðalaflinn í hvert net var því…Lesa meira

true

Auglýsa eftir menningarstyrkjum

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir í Skessuhorni vikunnar eftir umsóknum um styrki. Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í sveitarfélaginu, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu. Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun. Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt á vef Borgarbyggðar og er umsóknarfrestur til 23.…Lesa meira

true

Ærin Sameining þrílembd eftir þjófstart í Skorradalnum

Ærin Sameining á bænum Snartarstöðum í Lundarreykjadal kom bændum þar á óvart í gær þegar hún bar þremur myndar lömbum. Móður og afkvæmum heilsast vel. Jarðirnar Háafell í Skorradal og Snartarstaðir í Lundarreykjadal liggja saman og þar gengur féð af bænum. Við fósturtalningu fyrr í vetur hafði þó komið í ljós að Sameining væri fyrr…Lesa meira