
Um klukkan 13 í dag varð árekstur tveggja bifreiða skammt frá Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Vesturlandi, staðfestir í samtali við fréttavef Ríkisútvarpsins að fjórir hafi verið fluttir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Ekki lágu fyrir upplýsingar um líðan fólksins. Veginum var lokað um stund vegna slyssins.Lesa meira







