Fréttir

true

Daria verður að fá tækifæri segir sjúkrahúsforstjórinn

Hún verður auðvitað að fá tækifæri, segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans sem setti sig í samband við Dariu Peremot, háls- nef- og eyrnalækni frá Úkraínu eftir að hún greindi frá því í viðtali við Skessuhorn í síðustu viku að hún væri að vinna á veitingahúsi á Íslandi og fengi ekki tækifæri til að starfa sem…Lesa meira

true

Blóði safnað á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Stillholt 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 10. mars, frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira

true

„Ég skil ekki að ungur og efnilegur maður vilji slíta sér út á þessu“

„Það er ótrúlegt lágt lagst að reyna að afnema lýðræðislega ferla og stjórnarskrárvarin réttindi til að verja hagsmuni stórfyrirtækja á kostnað fólks í sveitum landsins,“ segir Eiríkur Blöndal verkfræðingur og bóndi á Jaðri í Borgarfirði en hann er félagi í Hagsmunasamtökum landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 1. Boðað frumvarp umhverfis- og orkuráðherra í síðustu viku sem kveður…Lesa meira

true

Yngsti prestur landsins var settur í embætti um helgina

„Ég hvet bara alla til að koma í kirkjuna, það verður tekið vel á móti öllum;“ segir séra Hilda María Sigurðardóttir í samtali við Skessuhorni. Hún var um helgina formlega sett inn í embætti sem prestur í Stykkishólmsprestakalli. Séra María Guðrúnar Ágústsdóttir prófastur í Reykholti stýrði innsetningarathöfninni sem var vel sótt en kirkjukórinn bauð upp…Lesa meira

true

Tvö mót búin í KB mótaröðinni

Annað mótið í KB mótaröðinni í hestaíþróttum var haldið í gær. Veðrið hélt áfram að stríða mótshöldurum en mótið átti að vera á laugardeginum en því þurfti að fresta um einn dag vegna slæms veðurs. Þátttaka var engu að síður góð á mótinu og var sérstaklega gaman að sjá hvað skráning var mikil í barnaflokki…Lesa meira

true

Leikur kattarins að músinni

Höttur tók á móti Snæfelli í fyrstu-deildarleik í körfubolta karla í gær. Hattarmenn sýndu að það er ekki tilviljun að þeir eru efstir í deildinni og höfðu yfirhöndina í öllum leikhlutum. Lokatölur urðu 132 gegn 73.   Hattarmenn deildu stigum býsna bróðurlega á milli sín, en Adam Eiður var stigahæstur með 25 stig, Ásmundur Múli…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi á morgun

Blóðbankabíllinn verður við Stillholt 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 10. mars frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira

true

Gæti orðið erfið færð á fjallvegum í dag

Í dag gengur í suðaustan 10-18 m/s með rigningu, slyddu eða snjókomu víða um land, en úrkomulítið norðaustanlands fram á kvöldið. Hlýnandi og hiti víða 0 til 6 stig síðdegis. Hægari vindur á Suður- og Vesturlandi í kvöld með skúrum eða slydduéljum. Í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar segir að hríðarástand geti skapast og að mjög…Lesa meira

true

Loðnuskipin þétt saman við Snæfellsnes

Eftir stutt hlé frá veiðum vegna veðurs, en einnig vegna þess að saman við loðnuna sem fyrst gekk inn á Breiðafjörð hefur bæst vestanganga sem er ekki jafn vel þroskuð, eru loðnuveiðiskip flotans nú þétt saman suðvestan við Snæfellsnes. Á meðfylgjandi skjámynd af Marine Traffic appinu sem tekin var rétt í þessu má meðal annars…Lesa meira

true

Glæsilegt Kútmagakvöld Lions – myndasyrpa

Lionsklúbbur Grundarfjarðar stóð fyrir árlegu kútmagakvöldi laugardaginn 7. mars í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Að þessu sinni var verið að safna fjármunum fyrir nýju þaki á Grundarfjarðarkirkju og áframhaldandi uppbyggingu á skíðasvæði Snæfellinga. Uppselt var á viðburðinn enda glæsilegar veitingar á boðstólnum. Einnig var happadrætti þar sem hægt var að vinna hvern glæsivinninginn á fætur öðrum.…Lesa meira