
Loðnuskipin þétt saman við Snæfellsnes
Eftir stutt hlé frá veiðum vegna veðurs, en einnig vegna þess að saman við loðnuna sem fyrst gekk inn á Breiðafjörð hefur bæst vestanganga sem er ekki jafn vel þroskuð, eru loðnuveiðiskip flotans nú þétt saman suðvestan við Snæfellsnes. Á meðfylgjandi skjámynd af Marine Traffic appinu sem tekin var rétt í þessu má meðal annars sjá uppsjávarveiðiskipin Víking, Svan, Venus, Börk, Beiti, Huginn, Gullberg, Suðurey, Heimaey, Álsey, Aðalstein Jónsson og Jón Kjartansson, öll á svipuðum slóðum. Taka skal fram að merkið við strandlínuna vestan við Hellnar er bauja sem rekið hefur í land.