
Þau María Magdalena Guðmundsdóttir, Drífa Óttarsdóttir og Magnús Stefánsson voru í einstaklega góðum gír enda á fyrsta borðinu sem var hleypt að kræsingunum. Texti og myndir: tfk
Glæsilegt Kútmagakvöld Lions – myndasyrpa
Lionsklúbbur Grundarfjarðar stóð fyrir árlegu kútmagakvöldi laugardaginn 7. mars í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Að þessu sinni var verið að safna fjármunum fyrir nýju þaki á Grundarfjarðarkirkju og áframhaldandi uppbyggingu á skíðasvæði Snæfellinga. Uppselt var á viðburðinn enda glæsilegar veitingar á boðstólnum. Einnig var happadrætti þar sem hægt var að vinna hvern glæsivinninginn á fætur öðrum. Matti Matt sá um veislustjórnun og var ekki annað að sjá en að gestir hafi skemmt sér konunglega.