
Gæti orðið erfið færð á fjallvegum í dag
Í dag gengur í suðaustan 10-18 m/s með rigningu, slyddu eða snjókomu víða um land, en úrkomulítið norðaustanlands fram á kvöldið. Hlýnandi og hiti víða 0 til 6 stig síðdegis. Hægari vindur á Suður- og Vesturlandi í kvöld með skúrum eða slydduéljum. Í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar segir að hríðarástand geti skapast og að mjög blind og erfið akstursskilyrði verði, einkum á fjallvegum. Einkum á þetta við svæði á Austfjörðum, Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði á Suðvesturlandi, Holtavörðuheiði, Þröskulda og Steingrímsfjarðarheiði á Norðvesturlandi sem og mestalla Vestfirði. Þetta ástand varir fram yfir miðnætti á flestum stöðum og jafnvel undir morgun fyrir vestan.
Á morgun verður suðvestan 8-15 m/sek og dálitlar skúrir eða él, en styttir upp á Norður- og Norðausturlandi. Lægir seinnipartinn og kólnar heldur.