Fréttir

true

Snæfell sigraði í Vesturlandsslagnum

Snæfell og Skallagrímur áttust í gær við í hreinum Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfunni. Fyrir leikinn var Skallagrímur á betri stað í stigatöflunni en heimavöllurinn var Snæfells og nýttu Hólmarar sér það. Eftir fyrsta leikhluta leiddu gestirnir úr Borgarnesi með 29 stigum gegn 24. Annar leikhluti var í járnum, en í síðustu tveimur…Lesa meira

true

Iðnaður fjórðungur verðmætasköpunar

Verðmætasköpun íslensks iðnaðar nam 1.100 milljörðum króna á síðasta ári. Það jafngildir um fjórðungi af heildarverðmætasköpun íslensks hagkerfis. „Útflutningstekjur greinarinnar námu 791 milljarði króna á því ári eða um 40% af heildar útflutningstekjum hagkerfisins. Í greininni störfuðu í fyrra 52 þúsund manns sem er nær eitt af hverjum fjórum störfum í hagkerfinu. Velta greinarinnar nam…Lesa meira

true

Tvær konur af Hvanneyri í stjórn Kvenfélagasambandsins

Formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands (KÍ) var haldinn á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi dagana 27. – 28. febrúar. Fundinn sóttu formenn og fulltrúar þeirra héraðssambanda sem eiga aðild að KÍ. Send var út kröfuhörð ályktun til stjórnvalda varðandi stöðu heilbrigðismála á landinu. Tveir nýir fulltrúar tóku sæti í stjórn. Það voru þær Hildur Traustadóttir, frá Kvenfélaginu 19.…Lesa meira

true

Hver er á línunni þegar hringt er í Neyðarlínuna 1-1-2?

Rætt við Hjördísi Garðarsdóttur mannauðs- og fræðslufulltrúa hjá Neyðarlínunni Þegar vá ber að höndum, einhver alvarlegur og lífsógnandi atburður á sér stað, er okkur kennt að hringja í Neyðarlínuna í númerið 1-1-2. Um getur verið að ræða hjartaáfall, heilablóðfall, brunasár, bráðaofnæmi, slys af hvaða toga sem er eða alvarleg veikindi. Jafnvel einnig að kötturinn hafi…Lesa meira

true

Varað við fugladauða og sjónmengun af vindorkuveri á Laxárdalsheiði

Oddviti sveitarstjórnar Dalabyggðar fagnar nýju áliti Skipulagsstofnunar sem segir stórt vindorkuver á Laxárdalsheiði geta haft verulega neikvæð umhverfisáhrif og efast um að réttlætanlegt sé að veita því leyfi Félagið Qair hefur kynnt áform um að reisa 29 vindmyllur, allt að 200 metra á hæð, á Sólheimum á Laxárdalsheiði.Í nýju áliti Skipulagsstofnunar um umhverfismatsskýrslu Qair fyrir…Lesa meira

true

„Veit ekki hvað ég hef átt marga báta“

Rætt við Hjörleif Guðmundsson trillukarl og þúsundþjalasmið í Ólafsvík Hjörleif Guðmundsson þekkja flestir sem eiga smábáta í Snæfellsbæ og víðar um land. Hann hefur um margra ára skeið aðstoðað útgerðarmenn sem þurfa að láta laga báta sína svo sem að gera við eða gera upp vélar eða plasta báta, svo dæmi séu tekin. „Ég byrjaði…Lesa meira

true

Færa á fjalirnar sýninguna Hvar er draumurinn?

Stór hópur nemenda Fjölbrautaskóla Vesturlands hefur undanfarnar vikur æft söngleikinn Hvar er draumurinn, eftir Höskuld Þór Jónsson. Sýnt verður í Bíóhöllinni á Akranesi. Hér er á ferðinni sprenghlægileg og hjartnæm sýning sem fjallar um ungmenni á tímamótum í lífinu; leitina að draumnum og þá staðreynd að lífið er ekki alltaf dans á rósum. Söngleikurinn er…Lesa meira

true

Staðfestu í gær nýtt Aðalskipulag Borgarbyggðar

Skipulagsstofnun hefur nú staðfest Aðalskipulag Borgarbyggðar 2025-2037 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2025. „Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022 ásamt síðari breytingum. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var í sveitarstjórn á sama fundi sveitarstjórnar,“ segir í tilkynningu Skipulagsstofnunar. Nýtt Aðalskipulag hefur því lögformlega tekið…Lesa meira

true

Börn í Snæfellsbæ standa efst á Vesturlandi í lesskilningi

Niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði munu verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra hefur nú gefið út. Jafnframt hafa niðurstöður lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár nú verið birtar í fyrsta sinn og eru þær birtar eftir sveitarfélögum. Fram kemur í upplýsingum frá ráðuneytinu að lesfimi er…Lesa meira

true

Veitur afþökkuðu tilboð um vatn úr landi Geldingaár

Vatnsskortur var á Akranesi undir lok febrúar vegna mikilla þurrka og með tilliti til væntanlegrar loðnuvertíðar. Sundlaug og íþróttahúsi var lokað tímabundið í Hvalfjarðarveit sem og náttúrulauginni Guðlaugu við Langasand á Akranesi. Borholur og vatnsréttindi í átta borholum í landi Geldingaár í Hvalfjarðarsveit stóðu Vatnsveitufélagi Hvalfjarðarsveitar og Veitum til boða í fyrrahaust gegn greiðslu á…Lesa meira