Stjórn KÍ. Frá vinstri: Magðalena K. Jónsdóttir gjaldkeri, Dagmar Elín Sigurðardóttir forseti. Hildur Traustadóttir nýkjörin ritari, Ragna Guðmundsdóttir nýkjörin í varastjórn, Eva Björk Harðardóttir varaforseti og Rósa Marinósdóttir meðstjórnandi. Á myndina vantar Helgu Guðmundsdóttur varastjórnarkonu. Ljósm. kí

Tvær konur af Hvanneyri í stjórn Kvenfélagasambandsins

Formannaráðsfundur Kvenfélagasambands Íslands (KÍ) var haldinn á Hótel Vesturlandi í Borgarnesi dagana 27. – 28. febrúar. Fundinn sóttu formenn og fulltrúar þeirra héraðssambanda sem eiga aðild að KÍ. Send var út kröfuhörð ályktun til stjórnvalda varðandi stöðu heilbrigðismála á landinu.