Iðnaður fjórðungur verðmætasköpunar

Verðmætasköpun íslensks iðnaðar nam 1.100 milljörðum króna á síðasta ári. Það jafngildir um fjórðungi af heildarverðmætasköpun íslensks hagkerfis. „Útflutningstekjur greinarinnar námu 791 milljarði króna á því ári eða um 40% af heildar útflutningstekjum hagkerfisins. Í greininni störfuðu í fyrra 52 þúsund manns sem er nær eitt af hverjum fjórum störfum í hagkerfinu. Velta greinarinnar nam nær 2.300 milljörðum króna í fyrra sem er um þriðjungur af veltu viðskiptahagkerfisins. Skattspor iðnaðar var 564 milljarðar króna árið 2024, stærst útflutningsgreina.“ Þetta er meðal þess sem kom fram í aðdraganda Iðnþings sem haldið er í Reykjavík í dag.