Fréttir

true

Harmonikkutónleikar á Akranesi

Kalman – tónlistarfélag Akraness stendur fyrir tónleikum í Akraneskirkju nk. fimmtudagskvöld, 26. febrúar kl. 20. Þar kemur fram harmónikkuleikarinn Flemming Viðar Valmundsson á einleikstónleikum þar sem frásagnarmáttur klassísku harmóníkunnar verður í fararbroddi. „Tónleikaprógramið samanstendur af verkum eftir tónskáld sem samið hafa sérstaklega fyrir harmóníkuna á síðustu áratugum, verk eftir Scarlatti, Mossenmark, Filippi, Sørensen, Koch og…Lesa meira

true

Flóttafólki á Bifröst fækkar milli ára

„Það er ekki gott fyrir neitt sveitarfélag að fimm prósent íbúanna séu flóttamenn og fjarri allri þjónustu og atvinnu,“ segir Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri í Borgarbyggð í samtali við Skessuhorn. Hann fagnar því að flóttafólki á Bifröst sé að fækka samkvæmt nýjustu tölum en í fyrra fluttu 47 íbúar frá Bifröst, bæði fjölskyldur, pör og…Lesa meira

true

Annatími hjá USNL nefnd Hvalfjarðarsveitar

Fjömörg erindi bárust Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd Hvalfjarðarsveitar (USNL) í liðinni viku, en alls tók hún fyrir um tuttugu misjafnlega umfangsmikil mál. Efnistaka var fyrirferðarmikil á fundinum. Þar var m.a. umsagnabeiðni um aukna efnistöku í landi Litlu – Fellsaxlar þar sem Borgarverk áætlar stækkun fyrirliggjandi námu um tíu hektara. Fyrir er náman um 13…Lesa meira

true

Úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs

Síðastliðinn föstudag fór fram úthlutunarhátíð þar sem styrkjum úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs var úthlutað í fimmta sinn. Viðburðurinn var haldinn að Nýp á Skarðsströnd. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir bæði samfélagseflandi verkefni og nýsköpun í Dalabyggð.  Til úthlutunar voru 20.825.000 krónur og fengu 29 verkefni styrk. „Fjölbreytni umsókna eykst frá ári til árs og margt spennandi í farvatninu.…Lesa meira

true

Hægt að skapa tugi nýrra starfa í ferðaþjónustu

Um 3% íbúa á Akranesi hafa atvinnu af ferðaþjónustu en það hlutfall er að meðaltali 8-10% á landsvísu. Ferðaþjónusta á Íslandi er orðin stærri en stóriðja og sjávarútvegur og því eftir miklu að slægjast fyrir sveitarfélagið. Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi segir ljóst að þarna sé tækifæri til að skapa tugi nýrra starfa en á…Lesa meira

true

Um berkla og berklasmit

Embætti Landlæknis og heilbrigðisráðuneytið hafa sent frá sér upplýsingar um berkla og berklasmit. „Berklar eru einn elsti smitsjúkdómur mannkyns. Í kringum 1950 dró mjög úr berklatilfellum hérlendis með tilkomu berklalyfja en þrátt fyrir miklar framfarir í læknavísindum greinast hér árlega um 10–20 tilfelli á ári. Flestir hafa heyrt um berkla sem alvarlegan lungnasjúkdóm, en færri…Lesa meira

true

Kosið verður um sameiningu í mars

Sveitarstjórnir Kaldrananeshrepps og Árneshrepps á Ströndum hafa tekið ákvörðun um að efna til íbúakosningar um sameiningu sveitarfélaganna dagana 14.-28. mars nk. Samstarfsnefnd um sameiningu hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórnanna, en samkvæmt sveitastjórnarlögum eiga þær að fjalla um álitið án atkvæðagreiðslu. Álitið er byggt á vinnu verkefnisstjórnar um óformlegar viðræður sveitarfélaganna sem meðal annars safnaði…Lesa meira

true

Tap og sigur Vesturlandsliðanna

Bæði Vesturlandsliðin í 1. deild karla í körfubolta spiluðu leiki á föstudaginn. Snæfell tók á móti Haukum í Stykkishólmi og töpuðu heimamenn með 84 stigum gegn 99. Gestirnir höfðu yfirhöndina í öllum lotum, utan annarrar. Jakorie Smith var atkvæðamestur í liði Snæfells með 37 stig og 12 fráköst en Sturla Böðvarsson skoraði 14. Á sama…Lesa meira

true

Nemendur LbhÍ taka þátt í franskri landbúnaðarkeppni

Nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands munu í þessari viku taka þátt í virtri franskri landbúnaðarkeppni, CJAJ 2026. Sýningin er ein sú stærsta í Evrópu. Þetta er í annað skipti sem nemendur Búfræðideildar skólans taka þátt og að þessu sinni mun hópurinn taka yfir samfélagsmiðla LbhÍ á meðan ferðalaginu varir, dagana 23.-26. febrúar. CJAJ – keppnin er hluti…Lesa meira

true

Lífið gengur sinn vanagang á höfninni

Miðvikudaginn 18. febrúar kom togarinn Akurey AK-10 til löndunar í Grundarfirði og landaði tæpum 160 tonnum af fiski áður en skipið hélt aftur til veiða rétt eftir miðnætti. Þórsnes kom einnig í land í Grundarfirði þar sem áhöfnin hvíldi lúin bein um borð áður en haldið var út á miðin til að draga netin eftir…Lesa meira