Íslenski hópurinn vakti athygli á síðasta ári fyrir kynningu á tvíreyktu hangikjöti, harðfiski og laufabrauði. Ljósm. LbhÍ

Nemendur LbhÍ taka þátt í franskri landbúnaðarkeppni

Nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands munu í þessari viku taka þátt í virtri franskri landbúnaðarkeppni, CJAJ 2026. Sýningin er ein sú stærsta í Evrópu. Þetta er í annað skipti sem nemendur Búfræðideildar skólans taka þátt og að þessu sinni mun hópurinn taka yfir samfélagsmiðla LbhÍ á meðan ferðalaginu varir, dagana 23.-26. febrúar.