Fréttir

true

Nemendur LbhÍ taka þátt í franskri landbúnaðarkeppni

Nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands munu í þessari viku taka þátt í virtri franskri landbúnaðarkeppni, CJAJ 2026. Sýningin er ein sú stærsta í Evrópu. Þetta er í annað skipti sem nemendur Búfræðideildar skólans taka þátt og að þessu sinni mun hópurinn taka yfir samfélagsmiðla LbhÍ á meðan ferðalaginu varir, dagana 23.-26. febrúar. CJAJ – keppnin er hluti…Lesa meira

true

Lífið gengur sinn vanagang á höfninni

Miðvikudaginn 18. febrúar kom togarinn Akurey AK-10 til löndunar í Grundarfirði og landaði tæpum 160 tonnum af fiski áður en skipið hélt aftur til veiða rétt eftir miðnætti. Þórsnes kom einnig í land í Grundarfirði þar sem áhöfnin hvíldi lúin bein um borð áður en haldið var út á miðin til að draga netin eftir…Lesa meira

true

Sameining tveggja ríkisstofnana gengin í gegn

Alþingi samþykkti í síðustu viku lög sem fela í sér að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sameinast. Allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, er nú á höndum einnar stofnunar. Um 150 manns starfa hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á þremur stöðum á landinu og um 25 manns hjá Skipulagsstofnun. Starfsemin sameinast þannig að…Lesa meira

true

Feðgar á færum

Það lá vel á feðgunum Hauki Randverssyni og syni hans Arnari þegar þeir komu að landi á báti sínum Geysi SH í Ólafsvík á laugardaginn. Daginn áður höfðu þeir sett Geysi á flot og svo til þess að athuga hvort allt virkaði sem skyldi skruppu þeir aðeins út fyrir höfnina til að prófa tæki og…Lesa meira

true

Hafnarsjóður Grundarfjarðar kaupir fasteignina Nesveg 4

Fyrir helgi var skrifað undir bindandi kauptilboð þar sem Grundarfjarðarhöfn kaupir fasteignina að Nesvegi 4 í Grundarfirði. Seljandi hússins er Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf. Um er að ræða 4.786,4 fermetra atvinnuhúsnæði sem áður hýsti Hraðfrystihús Grundarfjarðar. Árið 1996 keypti Fiskiðjan Skagfirðingur, síðar FISK Seafood, húsið. Elsti hluti þess var byggður 1941, en húsið hefur verið stækkað…Lesa meira

true

Sundlaug Grundarfjarðar heit og notaleg í frostinu

Miklar frosthörkur hafa verið síðustu vikur á landinu og sumsstaðar hefur þurft að loka sundlaugum vegna frosts. Fyrir örfáum árum hefði engum dottið í hug að hafa sundlaugina í Grundarfirði opna yfir veturinn en nú er öldin önnur. Eftir að orkuskipti voru á íþróttamannvirkjum Grundarfjarðar hefur sundlaugin verið heit og notaleg þrátt fyrir kuldann. Einu…Lesa meira

true

Líkur á að álverið komist fyrr í full afköst

Í afkomutilkynningu Century aluminum, móðurfélags Norðuráls, sem gefin var út í síðustu viku, segir að nú sé áætlað að viðgerð í verksmiðjunni á Grundartanga taki styttri tíma en búist hafði verið við. Kerlínan sem verið hefur úti frá því í október síðastliðnum, verði sett í gang fyrir lok apríl og álverið muni ná fullum afköstum…Lesa meira

true

Hugur íbúa til heitis nýs sveitarfélags verður kannaður

Nefnd til undirbúnings sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hélt sinn fyrsta fund 19. desember 2025 og hefur unnið að undirbúningi fyrir sameiningu sveitarfélaganna frá þeim tíma. Hún hefur nú sent inn erindi til innviðaráðuneytis þar sem kveðið er á um ýmsa þætti tengda undirbúningi væntanlegrar sameiningar sveitarfélaganna. Formaður nefndarinnar er Guðveig Eyglóardóttir forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Að…Lesa meira

true

Kettinum Marvin bjargað úr hæsta tré

Þau eru ólík verkefni slökkviliða. Í dag fór Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar í Melahverfi, en þaðan hafði hjálparbeiðni borist frá íbúa. Kötturinn Marvin var þá búinn að húka í hæstu greinum myndarlegs aspartrés í þrjár klukkustundir og gat sig hvergi hreyft. Vaskir slökkviliðsmenn komu með stiga og sóttu köttinn. Marvin var frelsinu feginn og hinn…Lesa meira

true

Fara þarf sparlega með vatn á Akranesi vegna þurrka og loðnuvinnslu

Veitur hafa sent frá sér tilkynningu til íbúa á Akranesi vegna mögulegs vatnsskorts í bænum á næstunni. Kemur það til vegna loðnuvertíðirinnar sem er fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun og óvenju langrar þurrkatíðar, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella. Gripið hefur t.d. verið til þess að loka Guðlaugu, náttúrulauginni við…Lesa meira