
Ráðhúsið í Borgarnesi. Ljósm. gj
Hugur íbúa til heitis nýs sveitarfélags verður kannaður
Nefnd til undirbúnings sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hélt sinn fyrsta fund 19. desember 2025 og hefur unnið að undirbúningi fyrir sameiningu sveitarfélaganna frá þeim tíma. Hún hefur nú sent inn erindi til innviðaráðuneytis þar sem kveðið er á um ýmsa þætti tengda undirbúningi væntanlegrar sameiningar sveitarfélaganna. Formaður nefndarinnar er Guðveig Eyglóardóttir forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Að sögn hennar mun undirbúningsstjórnin á næstu dögum setja könnun í loftið þar sem kannaður verður hugur íbúa til þess hvað sameinað sveitarfélag skuli heita. Niðurstaða úr þeirra könnun mun liggja til grundvallar fyrir nýja sveitarstjórn sem tekur við eftir kosningar í vor.