
Nesvegur 4 í Grundarfirði. Ljósm. grundarfjordur.is
Hafnarsjóður Grundarfjarðar kaupir fasteignina Nesveg 4
Fyrir helgi var skrifað undir bindandi kauptilboð þar sem Grundarfjarðarhöfn kaupir fasteignina að Nesvegi 4 í Grundarfirði. Seljandi hússins er Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf. Um er að ræða 4.786,4 fermetra atvinnuhúsnæði sem áður hýsti Hraðfrystihús Grundarfjarðar. Árið 1996 keypti Fiskiðjan Skagfirðingur, síðar FISK Seafood, húsið. Elsti hluti þess var byggður 1941, en húsið hefur verið stækkað og því breytt í áranna rás. Lóðin er ríflega 7.200 fermetrar. Kaupverð er 30 milljónir króna sem greiðist þegar skrifað verður undir endanlegan kaupsamning.