Haukur og Arnar með sýnishorn af aflanum ú þessari fyrstu veiðiferð. Ljósm. af

Feðgar á færum

Það lá vel á feðgunum Hauki Randverssyni og syni hans Arnari þegar þeir komu að landi á báti sínum Geysi SH í Ólafsvík á laugardaginn. Daginn áður höfðu þeir sett Geysi á flot og svo til þess að athuga hvort allt virkaði sem skyldi skruppu þeir aðeins út fyrir höfnina til að prófa tæki og tól. „Það var allt í toppstandi,“ sagði Haukur. „Svo nú er bara að bíða eftir veðri svo hægt verði að róa, en við fengum 240 kíló í þessum stutta prufutúr.“