
Fara þarf sparlega með vatn á Akranesi vegna þurrka og loðnuvinnslu
Veitur hafa sent frá sér tilkynningu til íbúa á Akranesi vegna mögulegs vatnsskorts í bænum á næstunni. Kemur það til vegna loðnuvertíðirinnar sem er fram undan á Akranesi með tilheyrandi aukningu á vatnsnotkun og óvenju langrar þurrkatíðar, sem gerir vatnsbúskap bæjarins viðkvæmari en ella. Gripið hefur t.d. verið til þess að loka Guðlaugu, náttúrulauginni við Langasand.
Í tilkynningu Veitna er tekið fram að á meðan á loðnuvertíð stendur yfir eykst heildar vatnsþörf í bænum verulega. Alla jafnan er það ekki vandamál, en nú hafa einhverjir mestu þurrkar þessa árstíma í nærri heila öld, ásamt langvarandi frosti, haft áhrif á vatnstökusvæði bæjarins. Úrkoma hefur verið lítil og vatnsból Akraness eru sérstaklega háð veðri og náttúruskilyrðum.
Neysluvatn Skagamanna og nærsveita er lindarvatn frá Ósveitu og Slögu ásamt vatni úr Berjadalsá. Allt vatn er meðhöndlað og gegnumlýst til að tryggja heilnæmi þess. Til að tryggja nægt vatn á meðan vertíð og þurrkar standa yfir biðla Veitur til íbúa og fyrirtækja að huga sérstaklega að notkun kaldavatnsins næstu vikur. Um er að ræða tímabundið ástand.
Veitur og Brim, rekstraraðili loðnuvinnslunnar, hafa með nýsköpun og samvinnu unnið að því að minnka notkun í loðnuvinnslunni um allt að 80%, án þess að draga úr gæðum eða öryggi. Eftir stendur þó að vinnslan þarf töluvert neysluvatn í framleiðsluna sem skapar fjölmörg störf á Skaganum.
Veitur eru að sama skapi í góðu samstarfi við aðra stórnotendur á Akranesi og allir hafa þegar gripið til ráðstafana til að takmarka vatnsnotkun sína. Jaðarsbakkalaug lokar í dag kl. 18 og verður lokuð eitthvað áfram. Guðlaug verður lokuð þar til annað verður tilkynnt. Bjarnalaug notar frekar lítið vatn og því er hægt að halda henni opinni.
Að lokum segir í tilkynningunni frá Veitum: „Þar sem úrkoma virðist áfram lítil biðlum við til allra fyrirtækja, stofnana og íbúa að fara sparlega með kalda vatnið næstu vikurnar. Þannig tryggjum við að nóg sé til fyrir mikilvæga verðmætasköpun á Akranesi og öll hús fái þann vatnsþrýsting sem þarf. Drykkjarvatnið má að sjálfsögðu drekka að vild, nota í matseld og láta það renna nóg til að fá það kalt. Önnur ráð eru árangursrík ef öll hjálpast að.“ Að lokum gefa Veitur nokkur heillaráð í stöðunni, svo sem að láta ekki vatnið renna að óþörfu, sleppa því að láta renna í kalda og heita potta, láta stutta sturtu duga og fleira.