Norðurál á Grundartanga. Ljósm. mm

Líkur á að álverið komist fyrr í full afköst

Í afkomutilkynningu Century aluminum, móðurfélags Norðuráls, sem gefin var út í síðustu viku, segir að nú sé áætlað að viðgerð í verksmiðjunni á Grundartanga taki styttri tíma en búist hafði verið við. Kerlínan sem verið hefur úti frá því í október síðastliðnum, verði sett í gang fyrir lok apríl og álverið muni ná fullum afköstum fyrir lok júlí. Vísir.is greindi frá. Afköst álversins hafa aðeins verið þriðjungur af því sem þau eru vanalega eftir að bilun varð í sprennum í október. Þá var óttast að viðgerðir gætu tekið allt að ár, þannig að horfur eru betri en þá samkvæmt þessu. Í samtali við Vísi vildi Sólveig Kr. Bergmann, framkvæmdastjóri samskipta og samfélagsmála hjá Norðuráli, ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Yfirlýsingar væri að vænta.