Fréttir

true

Skarkalagata er nafn á nýjustu deild Klettaborgar

Eftir síðustu áramót var opnuð ný deild í leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi, eins og komið hefur fram í frétt Skessuhorns. Liðnar vikur hafa börn og starfsmenn skólans unnið að því að finna nafn á nýju deildina. Allar deildir leikskólans bera nöfn staðarheita úr bókum Astridar Lindgren. Í leikskólanum er því deildin Sjónarhóll þar sem Lína…Lesa meira

true

Halldór og Unnur Ösp eru öflugt tvíeyki

Salka – ástin og dauðinn, einleikur Unnar Aspar Stefánsdóttur, var frumsýndur í Landnámssetrinu í Borgarnesi um helgina. Verkið er sett á fjalirnar í samstarfi við Þjóðleikhúsið og tilefnið er 20 ára starfsafmæli Landnámssetursins sem hóf starfsemi sína árið 2006. Verk Unnar byggir á fyrri hluta skáldsögu Halldórs Laxness um Sölku Völku; Þú vínviður hreini. Segja…Lesa meira

true

Glussaloki gaf sig í ekjubrú Baldurs

Eftir að flóabáturinn Baldur hélt í sína daglegu ferð yfir Breiðafjörðinn í dag varð óhapp á bryggjunni. Glussaloki við dælu í ekjubrú gaf sig með þeim afleiðingum að brúin féll og skekktist, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Engin slasaðist í þessu óhappi. Nú síðdegis eru starfsmenn frá Skipavík og BB & sonum að…Lesa meira

true

„Þar var vatn hvert fullt af fiskum“

Haldið var upp á aldarafmæli Veiðifélags Norðurár í Borgarfirði í gær – myndasyrpa Í gær var boðið til veglegrar afmælisveislu í veiðihúsinu á Rjúpnahæð á bökkum Norðurár í Borgarfirði. Húsið er á einum fegursta útsýnisstað sem um getur því út um stóran glugga á setustofu þess blasir hinn þekkti rammi ljósmyndara og listmálara við; hvar…Lesa meira

true

Loðnuvertíð að hefjast – hrognin verða fryst á Vopnafirði

Uppsjávarskip Brims hf. eru nú á loðnuveiðum eftir tveggja ára hlé frá þeim veiðum. Skipin hafa undanfarnar vikur komið við í Akraneshöfn og landað þar samtals 4.800 tonnum af kolmunna til vinnslu í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins. Einnig hefur undirbúningur fyrir loðnuvertíðina verið í gangi. Brim er með fiskimjölsverksmiðju starfandi allt árið á Akranesi. Þar er einnig…Lesa meira

true

Ragnheiður og Rögnvaldur eru Skagamenn ársins

Hefð er fyrir því að kjöri Skagamanns ársins er lýst á Þorrablóti Skagamanna sem fór fram í gær í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Að þessu sinni eru það hjónin Ragnheiður Hjálmarsdóttir og Rögnvaldur Einarsson sem eru Skagafólk ársins 2025. Þau hafa undanfarin fimm ár staðið í stafni vaxandi félagsstarfs eldri borgara á Akranesi og nágrennis og…Lesa meira

true

Bæring Nói sigraði í söngkeppni MA

Söngkeppni Menntaskólans á Akureyri fór fram í síðustu viku. Fimmtán atriði kepptu um að verða framlag skólans í Söngkeppni framhaldsskólanna. Bæring Nói Dagsson, sautján ára nemandi frá Stykkishólmi, stóð uppi sem sigurvegari með flutningi á laginu Teenage Dirtbag við íslenskan texta eftir hann sjálfan og vin hans. Bæring Nói mun því keppa fyrir hönd MA…Lesa meira

true

Dagur tónlistarskólanna er í dag

Dagur tónlistarskólanna er í dag, laugardaginn 7. febrúar. Hann er haldinn hátíðlegur um allt land og er víða opið hús hjá tónlistarskólum á Vesturlandi í dag. Markmiðið er að vekja athygli á því mikla starfi sem fer fram í tónlistarskólunum. Skemmst er að minnast orða Laufeyjar Lín, einnar skærustu tónlistarstjörnu Íslands á Grammy verðlaunahátíðinni í…Lesa meira

true

Sögufrægt hús til sölu í Borgarnesi

Gamla sparisjóðshúsið í Borgarnesi hefur verið auglýst til sölu. Húsið er ríflega hundrað ára, hannað af Guðjóni Samúelsssyni og byggt árið 1920. Það stendur á holti við Skúlagötu og var á sínum tíma byggt fyrir tvíhliða notkun. Á neðri hæðinni hafði Sparsjóður Mýrasýslu starfsemi en á efri hæðinni bjó þáverandi Sparisjóðsstjóri Magnús Ágúst Jónsson ásamt…Lesa meira

true

Íbúar á Vesturlandi eru nú 18.604

Á tveggja mánaða tímabili, frá 1. desember síðastliðnum til 1. febrúar, fjölgaði íbúum á Vesturlandi um 21, sem jafngildir 0,1%. Íbúum fjölgaði í sex sveitarfélögum, í einu stendur íbúafjöldi í stað og fækkun er í tveimur. Á Akranesi fjölgaði um 14 íbúa á tímabilinu, en þar eru nú 8.597 búsettir. Í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit var…Lesa meira