
Ragnheiður og Rögnvaldur eru Skagamenn ársins
Hefð er fyrir því að kjöri Skagamanns ársins er lýst á Þorrablóti Skagamanna sem fór fram á laugardaginn í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Að þessu sinni eru það hjónin Ragnheiður Hjálmarsdóttir og Rögnvaldur Einarsson sem eru Skagafólk ársins 2025. Þau hafa undanfarin fimm ár staðið í stafni vaxandi félagsstarfs eldri borgara á Akranesi og nágrennis og óhætt að segja að þau hafi verið vakin og sofin yfir eflingu félagsins. Upphaflega var Feban stofnað 5. febrúar 1989 og fagnaði því 37 ára afmæli í vikunni sem leið. Hátt í þúsund eru skráð í félagið og er því í mörg horn að líta hjá þeim sem standa í stafni fjölbreytts félagsstarfs.
Ragnheiður er formaður stjórnar Feban og Rögnvaldur er sömuleiðis í stjórninni. Í viðtali sem Ragnheiður gaf í Skessuhorni fyrir nokkrum árum lýsti hún félagsstarfi Feban þannig: „Í íþróttastarfinu erum við með í boði leikfimi, boccia, línudans, pútt og keilu. Við höfum afnot af íþróttamannvirkjum bæjarins þegar þau eru laus en nánast allt fer fram hér á Dalbrautinni nema sundleikfimin, púttið og keilan. Síðan erum við með bókmenntaklúbb þar sem bók er valin til samlesturs og lesin sem framhaldssaga. Einnig er ýmislegt annað efni á boðstólnum eins og smásögur, ljóð og fróðleikur af ýmsu tagi. Síðan er farið í ferðalög sem tengjast oftast sögusviði framhaldssögunnar. Þá er einnig farið í leikhúsferðir. Svo erum við með félagsvist, bridds og frjáls spil. Skemmtinefndin sér um opin hús einu sinni í mánuði eins og til dæmis bingó, þorrablót, sviðaveislu og alls kyns uppákomur. Svo má alls ekki gleyma Hljómi, samkór eldri borgara, sem er stór og öflugur kór sem æfir einu sinni í viku.“
Þeim Ragnheiði og Rögnvaldi er óskað til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.