Dagur tónlistarskólanna er í dag

Dagur tónlistarskólanna er í dag, laugardaginn 7. febrúar. Hann er haldinn hátíðlegur um allt land og er víða opið hús hjá tónlistarskólum á Vesturlandi í dag. Markmiðið er að vekja athygli á því mikla starfi sem fer fram í tónlistarskólunum. Skemmst er að minnast orða Laufeyjar Lín, einnar skærustu tónlistarstjörnu Íslands á Grammy verðlaunahátíðinni í byrjun febrúar. Hún fékk þar sín önnur Grammy verðlaun og notaði tækifærið til að benda á gildi tónlistarmenntunar og mikilvægi tónlistarskóla.