Íþróttir

true

Gott silfur er gulli betra

Í gær lék lið 9. flokks karla hjá ÍA til úrslita í VÍS-bikarkeppni í körfuknattleik gegn Fjölni í Reykjavík. Leikurinn markaði tímamót í sögu félagsins, en 30 ár eru liðin frá því ÍA lék síðast til úrslita í bikarkeppni í körfuknattleik. Þá er þetta jafnframt í fyrsta skipti sem unglingalið félagsins nær svo langt í…Lesa meira

true

Grundarfjörður gerði góða ferð í Mosfellsbæ

Meistaraflokkur Grundarfjarðar í blaki kvenna heimsótti lið Aftureldingar B að Varmá í Mosfellsbæ í gær. Stelpurnar úr Grundarfirði byrjuðu leikinn af krafti og unnu fyrstu hrinuna nokkuð örugglega 13-25 og komust í forystu 0-1. Heimakonur í Aftureldingu mættu aðeins ákveðnari til leiks í annarri hrinu en það dugði þó ekki til þar sem gestirnir unnu…Lesa meira

true

Vinna hafin við stefnumótun íþróttahreyfingarinnar

Vinna er hafin við heildstæða stefnumótun fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi og hófst með formlegum hætti á fundi formanna sérsambanda og íþróttahéraða sem haldin var á Akranesi í nóvember síðastliðnum. „Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að leggja verkefninu lið og hafa hugmyndir eða tillögur varðandi nálgun eða upplegg í stefnumótunarvinnunni, til að senda okkur…Lesa meira

true

Héldu styrktarmót í pílu

Síðastliðinn laugardag fór fram styrktarmót Keilusalarins á Akranesi og SF Arena í pílu. Fjórtán pör öttu þar kappi í tvenndarleik. Keppnisgjaldið rann óskipt til stuðnings Krabbameinsfélags Akraness og nærsveita. Úrslit urðu þau að fyrsta sætið hrepptu þau Ólafur Már Jónsson og María Hlíf Þorsteinsdóttir. Annað sætið kom í hlut þeirra Heiðrúnar Láru Tómadóttur og Jóns…Lesa meira

true

Afturelding lagði ÍA í Lengjudeildinni

Með hækkandi sól hefjast vetrarmótin í knattspyrnu. Lið ÍA hóf keppni í A-deild Lengjudeildar karla í gærkvöldi þegar liðið tók á móti Aftureldingu i Akraneshöllinni. Skemmst er frá því að segja að Afturelding hafði betur í leiknum og skoraði tvö mörg gegn einu marki heimamanna sem Rúnar Már Sigurjónsson skoraði. Liðin leika í riðli 2…Lesa meira

true

KR með öruggan sigur á ÍA

Lið ÍA og KR mættust í sextándu umferð Bónus deildar karla í körfuknattleik í AvAir höllinni í gærkvöldi. Fyrir leikinn var lið KR um miðja deild með 16 stig en lið ÍA í því neðsta með 6 stig. KR mætti ákveðnara til leiks og náði frumkvæði strax í upphafi. Forysta þeirra náði mest þrettán stigum…Lesa meira

true

Einstakur árangur norrænna handboltaþjálfara

Oft hefur í gegnum tíðina hefur verið talað um spænsku þjálfarabyltinguna meðal þjóða sem ná bestum árangri í handbolta. En nú hefur dæmið snúist við. Í undanúrslitum Evrópumóts karla, sem hefjast í kvöld, hafa Norðurlöndin hreinlega skellt í lás; eiga alla fjóra þjálfarana sem komnir eru í undanúrslit með lið sín; þrír frá Íslandi og…Lesa meira

true

Eldhamrar heimsækja Heilsueflingu 60+

Krakkarnir á fimm ára deild Grunnskóla Grundarfjarðar komu færandi hendi í Heilsueflingu eldri borgara síðasta fimmtudag. Þá færðu þeir fullorðnu íþróttaiðkendunum falleg hjörtu með hvetjandi áletrun og léku sér svo með þeim. Í vetur hafa Heilsueflingin og fimm ára deildin heimsótt hvor aðra og tekið þátt í starfi hvors annars. Líklega hafa báðir hóparnir gagn…Lesa meira

true

Góð byrjun á tímabilinu á Reykjavik International Games

Miklar bætingar voru hjá sundfólki frá Akranesi á Reykjavík International Games sem fram fór um helgina. Reykjavíkurleikarnir voru að þessu sinni haldnir í 19. skipti, hófust á fimmtudaginn en lauk í byrjun vikunnar. Eymar Ágúst Eymarsson bætti sig í öllum þremur greinum sem hann tók þátt í. Sunna Dís Skarphéðinsdóttir bætti sig í tveimur greinum…Lesa meira

true

Allt undir í leikjunum í dag og á morgun

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir í dag Sviss í þriðja og næstsíðasta leik í milliriðli 2 á EM í Svíþjóð. Hefst leikurinn klukkan 14:30. Á sama tíma á morgun mætir liðið svo Slóveníu. Vinni Ísland þessa tvo síðustu leiki í milliriðli fer það í undanúrslit mótsins sem hefst á föstudaginn. Ísland er sem stendur í…Lesa meira