Íþróttir

true

Skallagrímskonur áttu erfitt uppdráttar gegn Þórsurum

Skallagrímur beið stóran ósigur gegn Þór frá Þorlákshöfn, 89:49, í Bæjarins bestu deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Icelandic Glacial-höllinni í Þorlákshöfn þar sem heimakonur tóku snemma frumkvæðið og höfðu yfirburði lengst af. Berta María Þorkelsdóttir var langatkvæðamest í liði Skallagríms en það dugði skammt gegn öflugu liði Þórs. Heimakonur byrjuðu leikinn…Lesa meira

true

Karen Anna með þrenn verðlaun og landsliðslágmark

Karen Anna Orlita náði glæsilegum árangri á Íslands- og unglingameistaramótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina. Hún vann til þrennra verðlauna, bætti sinn besta tíma í öllum fimm greinum sem hún keppti í og náði landsliðslágmarki fyrir Framtíðarhóp Sundsambands Íslands. Í 100 metra skriðsundi vann Karen…Lesa meira

true

Snæfell missti sigurinn úr höndum sér gegn Þórsurum

Snæfell mátti sætta sig við níu stiga tap gegn Þór frá Þorlákshöfn, 93:102, í hörkuleik í körfunni í Stykkishólmi á föstudaginn. Heimamenn áttu góða spretti og höfðu þriggja stiga forystu eftir fyrsta leikhluta. Þeir náðu einnig að snúa leiknum sér í vil í þriðja leikhluta en Þórsarar reyndust sterkari á lokakaflanum og tryggðu sér sigurinn…Lesa meira

true

Stórsigur Skallagríms á Hamri í Borgarnesi

Skallagrímur vann sannfærandi sigur á Hamri, 105:83, í körfunni á föstudaginn. Borgnesingar tóku strax öll völd á heimavelli sínum og lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Heimamenn sýndu mikinn sóknarkraft og leiddu með 31 stigi í leikhléi, 63:32, fyrir framan 178 áhorfendur. Skallagrímsmenn byrjuðu af miklum krafti og unnu fyrsta leikhluta 31:16. Þeir…Lesa meira

true

Öflugur fyrri hálfleikur lagði grunn að sigri ÍA á Fjölni

ÍA vann góðan sigur á Fjölni, 104:93, í körfunni í leik sem spilaður var í AvAir-höllinni á Akranesi í gær. Skagamenn lögðu grunninn að sigrinum með öflugum fyrri hálfleik þar sem þeir skoruðu 60 stig gegn 45 stigum gestanna. Fjölnismenn sóttu í sig veðrið eftir hlé en heimamenn héldu forystunni og fögnuðu að lokum ellefu…Lesa meira

true

Ingimar Elí á förum frá ÍA

Ingimar Elí Hlynsson hefur óskað eftir því að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA. Frá þessu er greint á síðu félagsins. „Ingimar mun starfa hjá félaginu til áramóta og vinna með stjórn og starfsfólki í þeim verkefnum sem eru í gangi og framundan eru. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA þakkar Ingimari fyrir hans framlag og störf…Lesa meira

true

Keppt í ringó og boccia á Hvammstanga

Sunnudaginn 25. október var háð keppni í ringói í íþróttahúsinu á Hvammstanga. Eftir fjölmarga leiki þar sem vel var tekið á því urðu úrslit að í fyrsta sæti varð USVH-2, í öðru sæti varð UMSB og í þriðja USVH-1. Alls mættu sjö lið til keppni, þ.e. Glóðin Kópavogi, UMSB Borgarbyggð, FEBAK á Akureyri tvö lið,…Lesa meira

true

ÍA sækir bandarískan varnarmann til að styrkja liðið

Körfuknattleiksdeild ÍA hefur samið við bandaríska körfuknattleiksmanninn Allen Flanigan um að leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil. Flanigan er þegar kominn til landsins og hefur tekið þátt í tveimur æfingum með Skagamönnum. Vonir standa til að hann verði orðinn leikfær fyrir heimaleik ÍA gegn Fjölni á föstudaginn, en enn er beðið eftir atvinnuleyfi hans. Flanigan…Lesa meira

true

Haukur Andri og Nadía Steinunn valin í landsliðsverkefni

Tveir ungir knattspyrnumenn af Akranesi, þau Haukur Andri Haraldsson og Nadía Steinunn Elíasdóttir, hafa verið valin til landsliðsverkefna í nóvember. Haukur Andri er í leikmannahópi U21 landsliðs karla sem mætir Grikklandi í tveimur umspilsleikjum um sæti á EM 2027, en Nadía Steinunn hefur verið valin til æfinga með U17 landsliði kvenna. Lúðvík Gunnarsson og Ólafur…Lesa meira

true

Þrír Skagamenn í U19 landsliðinu fyrir undankeppni EM

Þrír Skagamenn eru í leikmannahópi U19 landsliðs karla í knattspyrnu sem tekur þátt í fyrri umferð undankeppni Evrópumótsins 2027. Þetta eru þeir Styrmir Jóhann (2008), Brynjar Óðinn (2009) og Gabríel Snær (2008), sem leikur með Elfsborg í Svíþjóð. Þórhallur Siggeirsson landsliðsþjálfari hefur valið hópinn fyrir undankeppnina sem hefst í dag í Wales og stendur til…Lesa meira