
Haukur Andri og Nadía Steinunn valin í landsliðsverkefni
Tveir ungir knattspyrnumenn af Akranesi, þau Haukur Andri Haraldsson og Nadía Steinunn Elíasdóttir, hafa verið valin til landsliðsverkefna í nóvember. Haukur Andri er í leikmannahópi U21 landsliðs karla sem mætir Grikklandi í tveimur umspilsleikjum um sæti á EM 2027, en Nadía Steinunn hefur verið valin til æfinga með U17 landsliði kvenna.