
ÍA sækir bandarískan varnarmann til að styrkja liðið
Körfuknattleiksdeild ÍA hefur samið við bandaríska körfuknattleiksmanninn Allen Flanigan um að leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil. Flanigan er þegar kominn til landsins og hefur tekið þátt í tveimur æfingum með Skagamönnum. Vonir standa til að hann verði orðinn leikfær fyrir heimaleik ÍA gegn Fjölni á föstudaginn, en enn er beðið eftir atvinnuleyfi hans.