Íþróttir

true

Öflugur síðari hálfleikur tryggði ÍA sigur á Hamri

Skagamenn unnu öruggan 99:80 sigur á Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik í AvAir höllinni á Akranesi í gærkvöldi. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd í þeim síðari og tryggðu sér 19 stiga sigur. Alls fylgdust 179 áhorfendur með leiknum. ÍA byrjaði betur og leiddi 25:19 eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir úr Hveragerði…Lesa meira

true

Snæfell hafði betur gegn Skallagrími í miklum spennuleik

Snæfell hafði betur gegn Skallagrími, 87:82, í hörkuspennandi Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik sem spilaður var í Borgarnesi í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi lengst af en Snæfellingar reyndust sterkari á lokakaflanum og tryggðu sér fimm stiga sigur. 212 áhorfendur fylgdust með æsispennandi viðureign. Liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrri…Lesa meira

true

Heimir Guðjónsson tekur við ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur gengið frá ráðningu á Heimi Guðjónssyni sem aðalþjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu, hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Heimir er einn sigursælasti þjálfari íslenskrar knattspyrnusögu. Á þjálfaraferli sínum hefur hann unnið sjö Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla hér á landi, auk þriggja titla með HB í Færeyjum á árunum 2018–2019. Nú…Lesa meira

true

Tíðinda að vænta af þjálfaramálum

Knattspyrnufélagið Fylkir staðfesti í gærkvöldi að Heimir Guðjónsson hafi látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu. Fotbolti.net segir Heimi nú á leiðinni að taka við þjálfun meistaraflokks karla hjá ÍA og býst við að Skagamenn staðfesti ráðninguna hans á næstu dögum. Lárus Orri Sigurðsson lét eins og kunnugt er af störfum eftir lokaleik…Lesa meira

true

Kristín er Íslandsmeistari í klassískum lyftingum

Íslandsmeistaramót í klassískum kraftlyftingum fór fram í íþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ á laugardaginn. Kristín Þórhallsdóttir úr ÍA keppti í +84 kg opnum flokki. Hún sigraði bæði í flokknum og var jafnframt stigahæsti keppandi mótsins og því Íslandsmeistari kvenna 2026. Kristín náði átta af níu lyftum gildum og setti fjölmörg Íslandsmet bæði í opnum flokki og…Lesa meira

true

Öruggur útisigur ÍA á Þór í Þorlákshöfn

ÍA vann góðan tíu stiga sigur á Þór Þorlákshöfn, 104:94, í 1. deild karla í körfuknattleik síðastliðið föstudagskvöld. Leikið var í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn að viðstöddum 170 áhorfendum. Skagamenn tóku frumkvæðið strax í upphafi og leiddu með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta, 27:20. Heimamenn náðu að minnka muninn lítillega í öðrum leikhluta en…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu naumlega fyrir Haukum

Skallagrímskonur máttu sætta sig við naumt tveggja stiga tap, 72:74, gegn Haukum í 1. deild kvenna í körfuknattleik í Borgarnesi á laugardag. Heimakonur höfðu frumkvæðið í upphafi og leiddu lengst af fyrri hálfleik, en gestirnir náðu að jafna metin fyrir síðasta leikhlutann og knýja fram sigur í jöfnum og spennandi leik. Skallagrímur leiddi 24:16 eftir…Lesa meira

true

Skallagrímur beið ósigur í Hafnarfirðinum

Skallagrímur mátti sætta sig við átta stiga tap gegn Haukum, 101:93, í 1. deild karla í körfuknattleik síðastliðið föstudagskvöld. Leikið var á heimavelli Hauka í Hafnarfirði en þetta var fjórði sigur heimamanna í jafnmörgum leikjum á tímabilinu. Haukar sýndu mikinn sóknarstyrk og náðu að tryggja sér sigur þrátt fyrir ágæta mótspyrnu Borgnesinga. Heimamenn hittu vel…Lesa meira

true

Dagskrá Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum

Á aðalfundi Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum 22. október síðastliðinn var ákveðin dagskrá mótaraðarinnar í Faxaborg í vetur. „Hægt er að bæta við tveimur til þremur liðum og eru áhugasamir hvattir til að setja sig í samband við formann deildarinnar, Kristján Gíslason kristgis@simnet.is sem allra fyrst,“ segir í tilkynningu. Dagsetningar og keppnisgreinar eru þessar: Þriðjudaginn 9. febrúar…Lesa meira

true

Lárus Orri lætur af þjálfun karlaliðs ÍA

Eftir lokaleik karlaliðs ÍA í Bestu deildinni í gær var tilkynnt að Lárus Orri Sigurðsson hættir sem þjálfari meistaraflokks. Í lokaleik liðsins var sannkölluð markaveisla þegar ÍA og Keflavík skildu jöfn 4-4 í leik sem þurfti að spila í Akraneshöllinni. Skagamenn enduðu í fjórða sæti deildarinnar sem er besti árangur liðsins í 19 ár.  Lárus…Lesa meira