
Heimir Guðjónsson er nýr þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍA. Ljósm. Jón Pétur Foto
Heimir Guðjónsson tekur við ÍA
Knattspyrnufélag ÍA hefur gengið frá ráðningu á Heimi Guðjónssyni sem aðalþjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu, hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Heimir er einn sigursælasti þjálfari íslenskrar knattspyrnusögu. Á þjálfaraferli sínum hefur hann unnið sjö Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla hér á landi, auk þriggja titla með HB í Færeyjum á árunum 2018–2019. Nú síðast vann Fylkir undir hans stjórn Lengjubikarinn, komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins og alla leið í úrslitaleikinn um sæti í Bestu deild karla, þar sem liðið tapaði 1-0 fyrir Þrótti.