
Heimir Guðjónsson. Ljósm. fotbolti.net
Tíðinda að vænta af þjálfaramálum
Knattspyrnufélagið Fylkir staðfesti í gærkvöldi að Heimir Guðjónsson hafi látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu. Fotbolti.net segir Heimi nú á leiðinni að taka við þjálfun meistaraflokks karla hjá ÍA og býst við að Skagamenn staðfesti ráðninguna hans á næstu dögum. Lárus Orri Sigurðsson lét eins og kunnugt er af störfum eftir lokaleik ÍA á Íslandsmótinu um síðustu helgi.