Íþróttir

true

Ingimundur og Anna Heiða páskameistarar

Þriggja kvölda páskatvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gær í Logalandi. Samanlagður árangur þriggja kvölda gilti til verðlauna. Ingimundur Jónsson og Anna Heiða Baldursdóttir báru sigur úr býtum með 183,5 stigum. Fengu þau að launum síðustu óbrotnu páskaeggin í Bónus. Í öðru sæti varð Sveinbjörn Eyjólfsson með 181,9 stig, en tvö af kvöldunum spilaði hann við…Lesa meira

true

Karlalið ÍA bikarmeistari í keilu

Leikið var til úrslita í gær í bikarkeppni Keilusambands Íslands í Egilshöll. Karlalið ÍA gerði sér lítið fyrir og hreppti gullverðlaun og er því bikarmeistari 2026. Í úrslita viðureigninni spilaði liðið við KFR-Lærlinga og vann sína viðureign næsta örugglega; 3 – 0. ÍA byrjaði heldur betur vel í viðureigninni og spilaði 720 gegn 587 en…Lesa meira

true

Tölt og skeið á síðasta móti Vesturlandsdeildarinnar

Á morgun, þriðjudaginn 14. apríl klukkan 18, er komið að síðasta móti vetrarins í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Keppni hefst í T1 klukkan 18 og síðan verður keppt í skeiði í gegnum Faxaborg. 31 keppandi er skráður til leiks í töltinu og 25 í skeiðinu. „Upplagt er því að leggja leið sina í Borgarnes og fylgjast…Lesa meira

true

Glímufólkið varði titla sína í Íslandsglímunni

Glímusamband Íslands hélt 115. Íslandsglímuna í gær og fór hún fram í nýju íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Átta keppendur voru skráðir í karlaflokki og þrír í kvennaflokki. Keppni fór mjög vel fram og sáust margar góðar glímur. Í karlaflokki varð hlutskarpastur Hákon Gunnarsson, ÚÍA, en hann lagði alla andstæðinga sína örugglega. Kristín Embla Guðjónsdóttir, ÚÍA, varð…Lesa meira

true

Íslandsglíman í fyrsta skipti í Búðardal

Laugardaginn 11. apríl klukkan 14 hefst 115. Íslandsglíman í nýju íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Þar mun fremsta glímufólk landsins etja kappi og reyna að ná í eftirsóttasta verðlaunagrip glímunnar. Í kvennaflokki er keppt um Freyjumenið en sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Glímudrottning Íslands. Í karlaflokki er keppt um Grettisbeltið, elsta verðlaunagrip á Íslandi, og hlýtur sigurvegarinn sæmdarheitið Glímukóngur…Lesa meira

true

Skagamönnum spáð góðu gengi í sumar

Fréttavefurinn Vísir.is birtir í dag niðurstöðu úr spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Bestu deild karla í fótbolta sem opinberuð var við hátíðlega athöfn í Kópavogi í dag. Fæstum að óvörum er Víkingi spáð titilvörn og Breiðabliki öðru sæti. Stjarnan og KR fylgja þar á eftir og er því spáð Evrópusætum fyrir næsta ár. Skagamönnum…Lesa meira

true

Dymbilmót í boccia

Mánudaginn 30. mars var haldið boccíamót í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Skráð voru tólf lið til keppni, en ellefu mættu til leiks. Liðin voru frá Húnaþingi-vestra, Akranesi og Borgarbyggð. Keppt var í þremur riðlum, alls 18 leikir. Sigurvegarar í riðlunum kepptu svo sín á milli til úrslita. Úrslitaleikirnir þrír voru spennandi og réðust úrslit ekki fyrir…Lesa meira

true

Háspenna, dramatík og burst í bikarkeppni karla um páskana

Leikið var í 16. umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu um páskana við misgóðar aðstæður, en líkt og landsmenn fundu á eigin skinni var víða fremur rysjótt veðurfar. Þurfti því að færa áætlaða útileiki inn, þar sem því var við komið, en aðrir þurftu að gjöra svo vel að spila úti. Í síðustu umferð duttu bæði…Lesa meira

true

Sunna vann til fernra silfurverðlauna

Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug (ÍM50) fór fram um undir lok mars í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Alls tóku 182 keppendur þátt frá níu félögum. Þrátt fyrir að keppendur úr Sundfélagi Akraness hafi verið færri en venjulega var árangurinn góður og stóðu keppendur sig vel. Sunna Arnfinnsdóttir var í fremstu röð í sínum keppnisgreinum og vann…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin úr leik í úrslitakeppninni

Vesturlandsliðin Snæfell og Skallagrímur spiluðu í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta, um laust sæti í Bónusdeildinni, fyrir og um páskana. Skemmst er frá því að segja að bæði lið máttu játa sig sigruð í öllum sínum leikjum. Breiðablik vann Skallagrím í öllum þremur leikjunum. Sama var uppi á tengingnum í leikjum Sindra á Höfn…Lesa meira