
Brynjólfur Þór og aðrir stuðningsmenn ÍA í góðum gír. Ljósm. kfía
Skagamönnum spáð góðu gengi í sumar
Fréttavefurinn Vísir.is birtir í dag niðurstöðu úr spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Bestu deild karla í fótbolta sem opinberuð var við hátíðlega athöfn í Kópavogi í dag. Fæstum að óvörum er Víkingi spáð titilvörn og Breiðabliki öðru sæti. Stjarnan og KR fylgja þar á eftir og er því spáð Evrópusætum fyrir næsta ár. Skagamönnum er svo spáð fimmta sæti í deildinni, sem hlýtur að teljast styrkleikamerki á þessum tímapunkti, en rökrétt eftir 4-0 sigur gegn Haukum um liðna helgi.