
Hákon Gunnarsson með Grettisbeltið og Kristín Embla Guðjónsdóttir með Freyjumenið. Ljósm. ruv.is/ Karl Sigtryggsson
Glímufólkið varði titla sína í Íslandsglímunni
Glímusamband Íslands hélt 115. Íslandsglímuna í gær og fór hún fram í nýju íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Átta keppendur voru skráðir í karlaflokki og þrír í kvennaflokki. Keppni fór mjög vel fram og sáust margar góðar glímur. Í karlaflokki varð hlutskarpastur Hákon Gunnarsson, ÚÍA, en hann lagði alla andstæðinga sína örugglega. Kristín Embla Guðjónsdóttir, ÚÍA, varð efst í kvennaflokki, einnig með fullt hús stiga. Þau eru bæði ríkjandi glímukóngur og glímudrottning og vörðu því titilinn frá fyrra ári.